Viðskipti Mánudagur 16.05.2011 - 14:23 - Ummæli ()

Verður leitað á fólki í Leifsstöð í boði Árna Páls?

Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra boðar enn strangari gjaldeyrishöft. (Mynd: Pressphotos.biz.)

Jón Magnússon lögmaður segir ríkisstjórnina komna langleiðina til Kúbu þegar kemur að friðhelgi einkalífs og eignarrétti.

Nýjasta dæmið sé frumvarp Árna Páls Árnasonar efnahags- og viðskiptaráðherra um enn harðari gjaldeyrishöft.

Þetta fullyrðir Jón, sem einnig er fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í grein á Pressunni í dag.

Þar segir meðal annars:

„Árni Páll ætlar nú með lagasetningu, að gefa embættismönnum enn frekari heimildir til að ganga á borgaraleg réttindi og auka  vald ríkisins. Fólk verður þannig skyldað, að viðlagðri refsingu, að bera sjálft keyptan gjaldeyri úr landi. Hjón verða að gæta þess að skipta gjaldeyrinum jafnt og börnin verða sjálf að bera sinn gjaldeyri.

Líkamsleit í Leifsstöð þarf til að tryggja eftirlit með því að enginn fari úr landi með of mikinn gjaldeyri. Spurning er hvort umframgjaldeyrir  verður gerður upptækur.

Þegar fólk kemur heim úr ferðalagi til útlanda krefst Árni Páll að það skili „ónotuðum“ gjaldeyri innan 2 vikna. Spurning er hvort því verður framfylgt með húsleit eftir heimkomu frá útlöndum og eignakönnun í leit að „umframgjaldeyri“. Árni Páll krefst þess að brot á  skilaskyldu  geti varðað  2 ára fangelsi.

Frumvarp Árna Páls er sönnun á skipbroti efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Höftin eru ekki lengur tímabundin, þau eru komin til að vera. Það sem verra er, frumvarpið felur í sér atlögu að mannréttindum, eins og friðhelgi einkalífs og eignarrétti.

Ríkisstjórn sem hefur pólitísk afskipti af ákæruvaldinu, vanvirðir niðurstöður Hæstaréttar og ákærir pólitískan andstæðing, er auðvitað hæstánægð með höft og skömmtun. Frumvarp Árna Páls snýst ekki bara um Kúbu-væðingu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Frumvarpið sýnir vilja ríkisstjórnarinnar til Kúbu-væðingar í mannréttindamálum.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is