Viðskipti Þriðjudagur 17.05.2011 - 19:35 - Ummæli ()

Hátt fall hjá eiganda Remax. Úr milljarða fjárfestingum í greiðsluaðlögun

Fasteignasalan Remax náði mikilli markaðshlutdeild í fasteignasölu hérlendis á skömmum tíma fyrir nokkrum árum.

Einn eigenda fasteignasölunnar Remax, Þórarinn Arnar Sævarsson, hefur sótt um greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara. Vekur þetta athygli enda var Þórarinn stórtækur á árunum fyrir hrunið en við hrunið féllu fjögurra milljarða króna skuldir á félög sem hann átti að hluta.

DV segir frá stöðu Þórarins sem komst í fréttirnar fyrr í vetur þegar hann var ákærður fyrir stórfelld skattabrot.

Í samtali við DV segir Þórarinn að ekkert annað hafi verið í stöðunni en sækja um greiðsluaðlögun. Kennir hann fjármálafyrirtækinu Dróma um ófarir sínar og segir fyrirtækið ganga of hart fram við innheimtu skulda þeirra félaga sem Þórarinn á í samvinnu við aðra.

Drómi hafi krafið hann um greiðslu 137 milljóna í einu vetfangi og það fé eigi hann ekki handbært. „Ég er búinn að fá dómskvadda matsmenn til að meta skuldir mínar í ljósi dóma um ólögmæti gengistryggðra lána. Þeir telja að Drómi skuldi mér 2 milljónir og 800 þúsund. Drómi neitar hins vegar að endurreikna lánin mín. Meðan ég er að reyna að fá þessu hnekkt ætla ég að hindra það að þeir geti gert mig gjaldþrota eða eitthvað þaðan af verra.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is