Miðvikudagur 18.05.2011 - 20:10 - Ummæli ()

Eva Joly um ásakanir gegn Strauss-Kahn: Málið má ekki menga stjórnmálalíf Frakka

Eva Joly

Íslandsvinurinn Eva Joly hefur tjáð sig við franska fjölmiðla um sakargiftirnar á hendur Dominique Strauss-Kahn, forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem sakaður er um að ofbeldisfulla nauðgunartilraun gagnvart 32 ára herbergisþernu á lúxushóteli í New York.

Talið hafði verið að bæði Joly og Strauss-Kahn yrðu meðal frambjóðenda í forsetakosningum í Frakklandi á næsta ári, hann sem fulltrúi sósíaldeḿókrata en hún sem frambjóðandi græningja. Þau hafa áður ást við því að Joly ákærði Strauss-Kahn fyrir spillingu í opinberu starfi  á árinu 1999 þegar hann var fjármálaráðherra. Þær ákærur kostuðu Strauss-Kahn ráðherraembættið en málið fór hins vegar aldrei fyrir dóm.

Frakkar eru mjög uppteknir af umfjöllun bandarískra fjölmiðla um nauðgunarkæruna gegn Strauss-Kahn og hafa margir þar í landi orðið til að gagnrýna myndbirtingar af honum handjárnuðum á leið fyrir dóm. Á móti hefur verið gagnrýnt að sú venja franskra fjölmiðla að fjalla ekki um „einkamál“ stjórnmálamanna hafi skapað mönnum eins og Strauss-Kahn skjól til að gefa fýsnum sínum lausan tauminn.

Í viðtali við AFP fréttastofuna um kæruna á hendur Strauss-Kahn og umfjöllun um hana í Bandaríkjunum segir Eva Joly að hún voni að máli nái ekki að menga stjórnmálalífið og lýðræðisferlið í Frakklandi og að málið eigi ekki að hafa nein áhrif á kosningabaráttuna.

„Mér er mjög umhugað um að allir séu álitnir saklausir uns sekt þeirra er sönnuð,“ segir Eva Joly, „en ef það sem honum er gefið að sök á við rök að styðjast er það bæði alvarlegt og sorglegt. Alvarlegt fyrir fórnarlamb hans og fyrir allar konur. Sorglegt fyrir Dominique Strauss-Kahn, fjölskyldu hans og pólitíska stuðningsmenn hans.“

Eva Joly  hefur einnig tjáð sig um umfjöllun fjölmiðla um málið í Bandaríkjunum og segir við Reuters-fréttastofuna að myndbirtingar af Strauss-Kahn séu ofbeldisfullar og að þær virðist ofbeldisfyllri en ella þegar um er að ræða svo þekktan mann. Hún bætir því við að bandaríska réttarkerfið geri engan greinarmun á forstjóra AGS og hverjum öðrum sakamanni enda byggist bandarískt réttarfar á þeirri hugmynd að koma eigi eins fram við alla sakamenn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is