Eldgos hafið í Grímsvötnum – dökkur gosmökkur sést víða á Suðurlandi

Ein nokkurra mynda af gosinu á síðunni http://klaengur.imgur.com/grmsvtn
Uppfært kl. 19.50: Ný tilkynning frá Almannavörnum var að berast: „Dökkur gosmökkur frá Grímsvötnum sést frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. Síðast gaus í Grímsvötnum í Vatnajökli árið 2004. Í kvöld verður flogið með vísindamenn yfir svæðið og aðstæður kannaðar.“
Uppfært kl. 19.30: Eldgos er hafið í Grímsvötnum. Á mbl.is er rætt við Örlyg Sigurjónsson, leiðsögumann, sem var staddur við Lîmagnúp og sá bólstur stíga upp af Vatnajökli um klukkan fimmtán mínútur yfir sjö í kvöld.
Gosórói kom fram á mælum Veðurstofunnar um kl. 18 sem benti til að gos væri að hefjast. Í tilkynningu frá Almannavörnum sem send var út um klukkan 19 sagði: „Nú á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið vikjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast.“ Um fimmtán mínútum eftir að aðvörunin var send út sást gosbólsturinn yfir jöklinum.
„„Þetta er dæmigerð gosóróahegðun,“ sagði Hjörleifur Sveinbjörnsson jarðfræðingur á Veðurstofunni í samtali við Mbl.is.
Í samtali við Pressuna segir Hjörleifur að við gosið í Grímsvötnum árið 2004 hafi liðið um tveir og hálfur tími frá upphafi skjálftavirkninnar fram að fyrstu eldsumbrotunum.
Jarðfræðingar hafa búist við gosi í Grímsvötnum allt þetta ár og á mbl.is segi að gosið komi þeim ekki á óvart. Hjörleifur segir að búast megivið flóði niður á Skeiðarársand í kjölfar goss.
Viðbúnaðarkerfi hefur verið virkjað og sendar hafa verið viðvaranir til Englands þannig að flugrekendur geti gert ráðstafanir til að breyta flugi.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is