Viðskipti
Miðvikudagur 25.05.2011 - 11:11
- Ummæli
()
Vorið í kaldara lagi en aprílmánuður fjórði heitasti á norðurhveli jarðar
Þó vorið hingað til á Íslandi þyki hafa verið í kaldara lagi miðað við síðari ár sýna mælingar að síðasti aprílmánuður var sá fjórði heitasti á landi á norðurhveli jarðar frá upphafi ábyggilegra mælinga. Ná þær mælingar 132 ár aftur í tímann.
Sést þetta glögglega á gögnum sem aðstandendur vefmiðilsins loftslag.is hafa tekið saman úr ýmsum áttum en að þeim vef standa áhugamenn um loftslag og breytingar á því.
Á heimsvísu var aprílmánuður sá sjötti heitasti miðað við mælingar á landi en sá ellefti heitasti miðað við mælingar í sjó. Sést glögglega að norðurhvel jarðar er að hitna meira en aðrir hlutar heimsins
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
