Stofnfjáreigendur krefjast rannsóknar á falli sparisjóðanna

Geirmundur Kristinsson var lengi vel sparisjóðsstjóri í SpKef. Ýmsar gjörðir hans á þeim tíma þykja afar vafasamar
Félagar í Samtökum stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík hafa sent Alþingi bréf þar sem þess er krafist að fram fari sams konar rannsókn á falli sparisjóðanna og Rannsóknarnefnd Alþingis stóð fyrir vegna hrunsins. Fá samtökin sjálf litla aðstoð eftirlitsaðila við eigin rannsóknir.
Héldu samtökin fjölmennan fund í gærkvöldi þar sem þetta var ákveðið, að því er fram kemur á vef Víkurfrétta.
Samtökin sjálf hafa reynt að grafast fyrir um hvers vegna stolt Suðurnesjamanna, eins og Sparisjóðurinn í Keflavík þótti vera lengi vel, stóð ekki lengur en raun bar vitni í kjölfar hrunsins 2008.
Hefur þeim lítið orðið ágengt og komið að lokuðum dyrum víða hjá eftirlitsaðilum eins og Fjármálaeftirlitinu. Segja samtökin lítinn vafa leika á að eftirlitsaðilar, Seðlabankinn og aðrir hafi með glæfralegu aðgerðaleysi átt stóra sök á hvernig fór fyrir sparisjóðum landsins.
Stofnfjáreigendur í SpKef voru 1750 talsins en þeir töpuðu samtals 16,5 milljarði við fall sparisjóðsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is