Jóhanna: Björgunarstarfinu að ljúka og lífskjarasókn hafin á ný
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir algeran viðsnúning hafa orðið í stöðu efnahagsmála á Íslandi og ekki hafi verið jafn bjart framundan um langa hríð. Þá segir hún nauðsynlegt að halda svallveislum og frjálshyggjutrúboði Sjálfstæðisflokksins sem lengst frá völdum.
Á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag sagði Jóhanna sláandi samanburð þegar leitið væri til þess hvernig staðan var þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum fyrir tveimur árum.
„Kjörtímabilið er hálfnað, það hefur sannarlega verið erfitt á köflum, en árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Kalfaskil hafa orðið, björgunarstarfinu er að mestu lokið og lífskjarasóknin er hafin. Ekki hefur verið bjartara yfir íslensku efnahagslífi um langa hríð. Samanburðurinn við stöðuna þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum er einsog að bera saman svart og hvítt,“ sagði Jóhanna.
Þá skaut hún föstum skotum að Sjálfstæðisflokknum og sagði nauðsynlegt að halda frjálshyggjustefnu flokksins frá stjórn landsins.
„Sú svallveisla var haldin undir lúðrablæstri frjálshyggjutrúboðs Sjálfstæðisflokksins. Lífskjarasóknin er framundan, en hún verður hins vegar á forsendum jafnaðarstefnunnar,“ sagði forsætisráðherra og bætti því við að ef Samfylkingin yrði áfram við völd fengi „ofurlaunaliðið og fjárglæfraliðið“ ekki að soga til sín fjármuni samfélagsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
