Jóhanna: Fullbúinn samningur við ESB gæti legið fyrir í lok næsta árs
Aðeins gæti verið eitt og hálft ár áður en fyrir liggur fullbúinn aðildarsamningur við Evrópusambandið um aðild en á þeim tímapunkti gæti slíkur samningur farið í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Kom þetta fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar en slíkt mat byggist á því að viðræður við ESB sem hefjast innan tíðar gangi vel.
Upptaka evru gæti tekið þrjú ár í viðbót við samþykkt samningar að mati Jóhönnu en hún sagðist reyndar ekki bjartsýn á að hafist gæti stefnumörkun varðandi evruaðild eins og Alþingi sé skipað í dag. Hins vegar séu öll efnahagsleg markmið sem séu forsendur upptöku evru sem þjóðargjaldmiðils í ágætu samræmi við áherslur núverandi stjórnvalda.
Morgunblaðið segir frá.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
