Sérstakur saksóknari: Þorri mála fyrir dóm árið 2013
Embætti sérstaks saksóknara hraðar málum eins og frekast er kostur en ráð er fyrir gert að meirihluti rannsóknar embættisins fari fyrir dómstóla á árinu 2013. Embættið hefur hingað til aðeins sent tvö mál til dómstólanna.
Embættið fer með rannsókn fjölmargra flókinna mála er varða bankahrunið og segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, við fréttastofu Stöðvar 2 að stefnt sé að því að flest mála fari fyrir dóm 2013. Engu að síður séu ákærur gefnar út um leið og rannsóknum ljúki.
Komu fram áhyggjur á málþingi um meðferð stórra efnahagsbrotamála um helgina hversu langan tíma rannsóknir sérstaks tækju en lögum samkvæmt getur óeðlilegur dráttur á rannsóknum brotamála að leiða til frestunar eða niðurfellingar refsingar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
