Smokkar úr lúxusskattþrepi? Velferðarráðuneyti leitar leiða
Enn er til skoðunar hjá velferðarráðuneytinu að lækka kostnað við getnaðarvarnir í þeirri von að það auðveldi baráttuna gegn kynsjúkdómum. Sérstaklega er verið að leita leiða til að lækka verð á smokkum.
Lék Eyjunni forvitni að vita hvort til stæði að lækka verð á getnaðarvörnum en slíkar hugmyndir hafa allnokkrum sinnum komið fram á undanförnum árum án þess að breytingar hafi orðið.
Til að mynda eru smokkar í hæsta skattþrepi og hafa verið það um hríð. Á sama tímabili hefur tilfellum kynsjúkdóma fjölgað, sérstaklega klamedíu, en áætlað hefur verið að þrír einstaklingar smitist hvern einasta dag af þeim sjúkdómi. Auk þess eru fóstureyðingar hérlendis að meðaltali fleiri en víðast hvar erlendis.
Samkvæmt svari frá ráðuneytinu er málið í vinnslu hjá ráðuneyti Guðbjarts Hannessonar en þar skoða menn sérstaklega leiðir til að lækka kostnað við smokkinn.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
