Viðskipti Þriðjudagur 31.05.2011 - 16:12 - Ummæli ()

Fjölskylda í greiðsluaðlögun: Einbýlishús, þrír fólksbílar, mótorhjól og tvö fjórhjól

Fjölskylda í Hafnarfirði hefur komist í skjól frá lánardrottnum og innheimtumönnum með því að sækja um greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara, að því er segir í tilkynningu til sýslumannsins í Hafnarfirði.

Það sem vekur athygli í þessu tilviki eru eignir fjölskyldunnar, sem eftir þessa tilkynningu eru ekki aðfararhæfar né heldur er hægt að krefjast greiðslna vegna skulda.

Samkvæmt tilkynningu frá umboðsmanni eru eignirnar eftirtaldar:

260 fermetra einbýlishús
Mercedes Benz E320 fólksbíll
Mercedes Benz 260e fólksbíll
Ford Escort fólksbíll
Vento Triton gt mótorhjól (vespa)
Tvö Yamaha Yfz450v fjórhjól
Mercedes Benz 312d sendibíll

Gert er ráð fyrir því í lögum um greiðsluaðlögun að þegar henni lýkur skuli fjölskylda halda eftir „hóflegu húsnæði“ og þeim bifreiðakosti sem talinn er eðlilegur og nauðsynlegur til daglegra nota.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is