Viðskipti Þriðjudagur 31.05.2011 - 19:38 - Ummæli ()

Húsleit hjá VÍS. Fyrrum stjórnarmenn og forstjóri yfirheyrðir

Höfuðstöðvar tryggingafélagsins VÍS. Þar var gerð húsleit í dag

Það eru milljarða lánveitingar VÍS til ýmissa félaga frá 2007 til 2009 sem var ástæða húsleitar og yfirheyrslu embættis sérstaks saksóknara fyrr í dag en fullyrt er að fjórir einstaklingar hafi verið yfirheyrðir í kjölfarið.

Það eru Guðmundur Örn Gunnarsson, sem hætti sem forstjóri fyrir skömmu og þeir Erlendur Hjaltason, Bjarni Brynjólfsson og Lýður Guðmundsson sem sátu í stjórn VÍS þessi ár samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Fóru húsleitir sérstaks saksóknara fram á tveimur stöðum í dag en grunur leikur um meint brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga í tengslum við ráðstafanir á fjármunum vátryggingafélagsins og brot á lögum um vátryggingastarfsemi. Um milljarða króna er þar að ræða.

Yfirheyrslur yfir tveimur af mönnunum fjórum standa enn yfir eftir því sem Eyjan kemst næst.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is