Ný rannsóknarnefnd Alþingis? Vilja til botns í falli sparisjóðanna
Verði þingsályktunartillaga allsherjarnefndar Alþingis að veruleika mun önnur rannsóknarnefnd á vegum Alþingis taka til starfa við að rannsaka í kjölinn fall sparisjóðanna í landinu.
Var tillaga þessi lögð fram í dag en töluvert hefur kallað eftir slíkri rannsókn af fjölmörgum aðilum og einstaklingum er töpuðu fjármunum á falli þeirra.
Þykir það veigamikil ástæða til rannsóknar að sparisjóðir landsins komu lítið við sögu í rannsóknarskýrslu Alþingis sem birt var fyrir rúmu ári síðan að því fram kemur í greinargerð með tillögunni.
Skal nefndin sem ráðin verður komast til botns í hvort mistök eða vanræksla af einhverju tagi hafi verið gerð við framkvæmd laga og reglna um starfsemi sparisjóðanna og ekki síður finna út hver eða hverjir beri þar ábyrgð.
Verði nefnd þessi að veruleika mun hún verða skipuð þremur einstaklingum sem forsætisnefnd þingsins mun skipa.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
