Viðskipti Þriðjudagur 31.05.2011 - 15:39 - Ummæli ()

Samfylkingin: Við höldum víst fundi á veitingahúsum. Sigmundur á Muffin Bakery

Hér heldur formaður Framsóknarflokksins fund á morgun, en ekki í húsnæði flokksins í Kópavogi.

Samfylkingin hefur sent frá sér tilkynningu þar sem áréttað er að fundir á vegum flokksins fari allajafna fram í húsnæði á vegum flokksins, en að öðrum kosti á hótelum, kaffihúsum og í félagsheimilið.

Tilefni þessarar tilkynningar er gagnrýni Samtaka ferðaþjónustunnar þess efnis, að starfsemi veitingahúsa hafi verið skattlögð svo mjög að stjórnmálaflokkar veigri sér við að nýta sér þjónustu þeirra, en haldi fremur fundi í skólum og álíka húsnæði.

Í tilkynningu flokksins eru taldir upp um áttatíu fundir, sem flokkurinn hafi staðið fyrir á síðustu tveimur árum, og segir þar m.a.:

„Árið 2010 hélt flokkurinn fimm flokkstjórnarfundi, þrír voru haldnir á Hótel Loftleiðum, einn í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi og einn í Fjölbrautaskóla Garðabæjar. Í fundaferð þingflokks á sl. ári voru haldnir um 30 fundir um allt land langflestir á veitingahúsum, kaffihúsum eða í félagsheimilum.“

Samfylkingin tekur því gagnrýni Samtaka ferðaþjónustunnar ekki til sín.

Þess má geta að formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur auglýst fund á kaffihúsinu Muffin Bakery í Kópavogi á morgun, þótt flokkurinn eigi þar ágætis húsnæði til fundahalda.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is