Viðskipti Föstudagur 03.06.2011 - 13:42 - Ummæli ()

Guðbjörn: Ráðherrar VG toppa sjálfstæðismenn í vitleysu

Landbúnaðarráðherra telur eðlilegt að setja tolla á landbúnaðarvörur frá Evrópu

„Það hlýtur að vera öllum ljóst að koma þarf þessu fávísa fólki frá völdum og að koma verður fagfólki í ráðherrastöður og stóla embættismanna, því það ágæta fólk sem þarna situr er að gera okkur að athlægi út um allar jarðir og skilur ekki okkar hagsmuni.“

Svo stór eru orð Guðbjörns Guðbjörnssonar sem fengið hefur sig fullsaddan á fávísum ráðherrum og þingmönnum Vinstri grænna og segir þá farna að jafna og jafnvel toppa vitleysisganginn hjá sjálfstæðismönnum, en sjálfur starfaði Guðbjörn lengi innan Sjálfstæðisflokksins.

Þar vísar Guðbjörn til krafna bænda um tolla á allar landbúnaðarvörur frá Evrópusambandinu en undir það hefur Jón Bjarnason landbúnaðarráðherra tekið.

Að við skulum vera með forystufólk hjá íslensku bændasamtökunum, sem ekki hefur áhuga á að kynna sér hvað felst í tollabandalagi ESB er í raun eitt mál, en að við séum með heilt ráðuneyti og ráðherra, sem setur fram aðra eins vitleysu er gjörsamlega óásættanlegt. Að tollar eigi að leggjast á vörur frá öðru öðru ríki tollabandalags er svo út úr kú, að tilhugsunin gerir mig sem fagmann hálf ringlaðan og það fer um mig kjánahrollur.

Hvernig væri að ESB kæmi með gagntilboð og segði að það væri allt í lagi að við hefðum toll á landbúnaðarafurðir, en að á móti legðust háir tollar á fisk t.a.m. 30% auk þess sem lagt yrði 430 – 500 kr. gjald á hvert kíló af fiski. Og ef okkur hugnaðist þetta tilboð ekki væri hægt að breyta krónutölu í prósentur og yrðu tollarnir þá á bilinu 182%-216% allt eftir því hvaða fiskur ætti í hlut.

Slæmir voru nú Geir. H. Haarde og hans kónar – að ógleymdum Davíð Oddssyni og fleiri embættismönnum – og mörg vitleysan rann nú upp úr því fólki, t.d. voru bankarnir að sögn þeirra traustari en gull (Geir & Ingibjörg út um allar trissur), endurmenntunin (Þorgerður Katrín), við borgum ekki skuldir óreiðumanna, rússalánið (Davíð) o.s.frv.

En ég held að Jón Bjarnason og ýmsir aðrir þingmenn og ráðherrar VG séu að toppa fyrrgreinda vitleysu með þessu uppátæki og nokkrum öðrum; þjóðnýting á fyrirtækjum, Icesave o.fl. – svei mér þá!


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is