Vefsíðustríðið: Geir Haarde bauðst að koma með athugasemdir og efni
Verjanda Geirs H. Haarde í Landsdómsmálinu bauðst að koma með athugasemdir og efni eða breyta vefsíðu þeirri er saksóknari Alþingis hefur nýlega opnað vegna ákærunnar á forsætisráðherrann fyrrverandi áður en síðan var opnuð formlega.
Hefur opnun þeirrar vefsíðu vakið hörð viðbrögð og ýmsir jafnvel túlkað slíkan vef sem beina árás á Geir H. Haarde. Þá hefur formaður Lögmannafélagsins sagt óeðlilegt að saksóknari opni heimasíðu um einstök mál.
Sjálf segir Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, við Morgunblaðið að sér sé fyrirmunað að sjá hvað sé athugavert við að opna slíka síðu fyrir almenning í máli sem eigi sér engin fordæmi í sögunni.
Á umræddri síðu, sakal.is, er að finna opinber gögn í málinu gegn Geir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
