Viðskipti Þriðjudagur 07.06.2011 - 20:44 - Ummæli ()

Greiðsluaðlögun: 2.800 umsóknir en aðeins 22 gegnum nálaraugað

Velferðarráðherra er yfirmaður umboðsmanns skuldara. Þar er langur listi óafgreiddra mála.

Afar lítill hluti þess fólks sem sótt hefur um greiðsluaðlögun síðan umboðsmaður skuldara tók til starfa fyrir tíu mánuðum hefur fengið úrlausn sinna mála. Einungis 22 samningar um lausn í fjármálum einstaklinga hafa verið gerðir en fyrir liggja umsóknir frá 2.800 einstaklingum.

Staðfesti Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra þetta á Alþingi í dag en fyrirspyrjandi var Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki.

Embætti umboðsmanns skuldara hefur móttekið 896 umsóknir alls og af þeim eru 719 mál í vinnslu en 72 sinnum hefur greiðsluaðlögun verið synjað.

Samþykki allra kröfuhafa viðkomandi einstaklings þarf til svo að greiðsluaðlögun fáist staðfest og ný viðráðanleg greiðsluáætlun sé lögð á borð skuldarans. Einstaklingar komast hins vegar í skjól frá lánardrottnum sínum um leið og sótt er um greiðsluaðlögun og á meðan það ferli stendur yfir.

RÚV greindi frá.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is