Sætu litlu kópunum í Húsdýragarðinum lógað á haustin
„Staðreyndin er sú að ef við gerðum ekki neitt þá væri þetta selagarður en ekki fjölskyldu- og húsdýragarður,“ segir Þorkell Heiðarsson, sjávarlíffræðingur hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, við Eyjuna.
Árlega fæða urtur í garðinum allt að þremur kópum en plássskortur gerir það að verkum að lóga verður kópunum velflestum á haustin.
Þykir reyndar afar sérstakt hversu vel urtum í garðinum gengur að kæpa því reyndin er önnur víða erlendis þar sem það er undantekning fremur en regla að urtur kæpi í sædýrasöfnum.
Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum er selalaugin ekki nógu stór til að hægt sé með góðu móti að bæta við selum og því verða forráðamenn að lóga kópum á haustin. Ekki er úrræði að sleppa þeim lausum út í náttúruna að sögn Þorkels því ekki aðeins er um smithættu að ræða heldur líka kunna kóparnir ekkert að veiða sér til matar eftir að hafa alist upp í sædýrasafni.
Alls hafa milli 50 og 60 kópar fæðst í garðinum frá því hann opnaði og eru þeir svæfðir af dýralækni á haustin.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
