Viðskipti Mánudagur 20.06.2011 - 07:56 - Ummæli ()

Fundur innanríkisráðherra sagður „nálægt því að snúast um ekki neitt“

Stærri vegavinnuframkvæmdir hanga saman við vegtolla og það líst innanríkisráðherra miður á.

„Fundurinn var jafn nálægt því og komist verður að snúast um ekki neitt,“ sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, að loknum fundi með innanríkisráðherra í gær. Var þar ræddur hugsanlegur forsendubrestur þriggja ára kjarasamninga en bæði Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands telja þá samninga í uppnámi.

Hafa hvor tveggja samtökin frest til morguns til að rifta samningunum sem loks voru samþykktir í byrjun maí. Gengu SA og ASÍ aðeins að borðinu þá vegna yfirlýsinga stjórnvalda um atvinnuskapandi aðgerðir við stórframkvæmdir en ýmislegt þykir enn upp á vanta til að það loforð standist.

Vill Vilhjálmur við Morgunblaðið ekki fullyrða hvort samningar séu í uppnámi en Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur sagt að stjórnvöld hafi staðið við sitt og eina sem út af standi varði vegaframkvæmdir. Telur hann of mikla andstöðu við vegatolla í landinu sem eru forsenda þess að farið sé út í veigamikil verkefni á því sviði.

Ólafur Darri Andrason hagfræðingur Alþýðusambandsins segir ljóst að fari vegaframkvæmdir ekki af stað þurfi að finna eitthvað annað í staðinn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is