Viðskipti Þriðjudagur 21.06.2011 - 19:49 - Ummæli ()

Lýður Guðmundsson gagnrýnir sérstakan saksóknara og skýrslu RNA

Bræðurnir Ágúst og Lýður eru hættir afskiptum af Exista og einbeita sér að reksti Bakkavarar í Bretlandi.

Sakir þær sem bornar hafa verið á Lýð Guðmundsson, stjórnarformann Bakkavarar og fyrrum eiganda Exista, eru aldeilis fáránlegar að mati hans sjálfs. Sérstaklega þykir honum athugunarvert að sérstakur saksóknari hafi dregið upp Rannsóknarskýrslu Alþingis í miðri yfirheyrslu og beitt henni fyrir sig sem sönnunargagni.

Þetta segir Lýður vera dæmalaust, en hann var handtekinn og yfirheyrður í lok síðasta mánaðar vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á lánveitingum Vátryggingafélags Íslands.

Gerir Lýður lítið úr Rannsóknarskýrslunni sem hann fullyrðir að sé morandi í villum og þrátt fyrir að mikið sé fjallað um Exista og tengd félög í þeirri skýrslu segir hann allt vaðandi þar í röngum ályktunum.

Þá telur Lýður ástæðu til að benda á að hrunuppgjörið hér eigi sér engin fordæmi og til dæmis hafi enginn verið ákærður vegna undirmálslánanna í Bandaríkjunum þrátt fyrir hin miklu áhrif þeirra í hruninu.

Lýður skrifar grein um rannsóknina gagnvart sér og Exista sem birtist í Fréttablaðinu á morgun.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is