Eygló: Síminnkandi afli og skuldsetning sjávarútvegsins góður árangur?
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vill vita við hvað Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, er að miða þegar þeir tala um góðan árangur sjávarútvegs á Íslandi og að ekki eigi að breyta neinu við fiskveiðistjórnun.
Gerir Eygló þetta að umfjöllunarefni í nýrri grein hér á Eyjunni þar sem hún telur heldur fulllangt gengið að segja að Íslendingar hafi náð miklum árangri í fiskveiðistjórnun sinni.
Efnahagsreikningur íslensks sjávarútvegs hefur stækkað um 55% árið 1997-2008 ef stærð hans er mæld í SDR. Aukning skulda hefur verið meiri en eigna og hefur bókfært eigið fé greinarinnar þurrkast út. Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri áætlar að 50-60% haf verið vegna kaupa á aflaheimildum, 20-30% vegna fjárfestinga í ótengdum rekstri og afgangurinn 10-15% vegna taps á gjaldeyris- og afleiðuviðskiptum. Varanlegir rekstrarfjármunir hækka ekki, sem segir okkur að greinin hafi lítið sem ekkert fjárfest m.a. í skipum, tækjum og húsum.
Fiskveiðistjórnun Íslendinga hefur því skilað okkur minnkandi þorskveiðum, gríðarlegri skuldsetningu og fjárstreymi út úr greininni.
Í hverju liggur þá árangurinn? Samþjöppun? Hærra verði á aflaheimildum? Fækkun starfa í fiskvinnslu?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
