Steingrímur: Þeir svartsýnu trúa engu hér heima en trúa vonandi OECD
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vonast til þess að þeir sem svartsýnir eru á efnahagsbatann hérlendis sofi nú betur í kjölfar birtingar skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, þar sem bati er sagður eiga sér stað.
Er ráðherrann ánægður með skýrsluna sem fjölmiðlar greindu frá í gær enda sýni hún að landið sé á réttri leið út úr ógöngunum sem hrunið skapaði. Vonar Steingrímur að svartsýnir trúi OECD, því ekki trúi þeir neinu hér heima.
Sjálfur tekur Steingrímur þó stofnuninni sem slíkri með fyrirvara í samtali við Smuguna.
„Ég hef sótt fundi og ráðstefnur hjá OECD í mörg ár og fannst að mörgu leyti að tónninn í þeim hefði orðið gagnrýnni eftir hrunið. Stofnunin var náttúrulega afar samdauna þeirri hugmyndafræði sem réði ríkjum fyrir hrun og hefur ekki algerlega endurskoðað sínar hefðbundnu áherslur. Hvort sem stofnunin viðrar markaðssjónarmið í sjávarútvegi eða hugmyndir um einkavæðingu orkufyrirtækja, þá kippi ég mér ekki upp við það. Það verður ekki hróflað við eignarhaldi stóru orkufyrirtækjanna enda væri það eitthvað það vitlausasta sem hægt væri að gera við þessar aðstæður, að slátra gullgæsinni.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
