Viðskipti Sunnudagur 26.06.2011 - 19:51 - Ummæli ()

Þorvaldur: Skussar í útgerð þurfa að fá sér aðra vinnu

Þorvaldur Gylfason minnir á að sjávarútvegsfyrirtækin eru skuldum vafin.

Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði og stjórnlagaráðsmaður segir að hæfara fólk en það sem nú rekur sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að taka við rekstri þeirra.

Þessi ummæli eru viðbrögð við umræðum um kvótakerfið, en hagfræðingar hafa gagnrýnt kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra vegna þess hversu arðsemi í sjávarútvegi myndi minnka yrði það að lögum.

Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra hefur tekið undir það sjónarmið að arðsemi eigi ekki fórna fyrir önnur markmið, sem hægt sé að ná með öðrum hætti. Það gerði hann m.a. í viðtali í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun þar sem hann sagði:

„Við getum ekki fórnað arðsemi sjávarútvegsins fyrir einhver önnur sjónarmið. [...] Arðsemin verður að vera að leiðarljósi og þeim mun arðmeiri sem sjávarútvegurinn er, því meira svigrúm höfum við til að standa undir velferðarkerfinu og til þess að veita í gegnum sértækar byggðaaðgerðir fjármunum til atvinnuþróunar á svæðum sem hafa farið illa út úr kvótakerfinu.“

Þorvaldur bregst við í stuttri færslu á facebook, þar sem hann segir:

„Margir, nú síðast efnahags- og viðskiptaráðherra í útvarpinu í morgun, virðast halda, að fiskurinn hverfi af miðunum, séu óhæfir og skuldum vafðir eigendur útvegsfyrirtækja látnir víkja fyrir hæfara fólki á frjálsum markaði. Þeir horfa fram hjá – eða fatta ekki – grunnforsendu markaðsbúskapar, sem er þessi: Skussar þurfa að fá sér störf við sitt hæfi.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is