Viðskipti Fimmtudagur 30.06.2011 - 20:32 - Ummæli ()

Frost á hverjum einasta degi í júní. Nýjustu tölur frá Trausta Jónssyni

Ein af skýringamyndum um veðrið að undanförnu á vef Trausta Jónssonar.

Frost mældist á öllum veðurstöðvum landsins í mánuðinum sem er að ljúka. Á köldustu veðurstöðinni, Gagnheiði, var sett nýtt kuldamet fyrir júnímánuð. Hið gamla var -0,15 gráður á Celcius. Í nýliðnum júní var meðalhitinn (meðalkuldinn) -0,8°C.

Þetta er meðal þess sem fram kemur á vef Trausta Jónssonar veðurfræðings sem reglulega skrifar fróðlegar greinar um veðurfar.

Trausti setur þann fyrirvara að enn séu ókomnar tölur frá síðasta degi júnímánaðar, en bendir á nokkrar mjög athyglisverðar staðreyndir um hitastig í mánuðinum.

Þannig mældist frost einhvers staðar á landinu á hverjum einasta degi í júní og í byggð voru frostnætur fimmtán, eða annan hvern dag. Til mótvægis komst hiti þó í tíu stig einhvers staðar á hverjum degi.

Þá er óvenjulegt er að veðurstöð á höfuðborgarsvæðinu sé sú hlýjasta í mánuðinum. Af sjálfvirkum stöðvum er Reykjavíkurflugvöllur hlýjastur, en í kjölfarið koma Geldinganes, Korpa og Veðurstofutún.

Hiti komst aðeins einn dag í 20 gráður, en það var 19. júní. Það gerðist á Þingvöllum og á Þyrli í Hvalfirði. Þingvellir voru einnig átta sinnum með mesta hita dagsins og einu sinni minnsta hita á landinu.

Trausti bendir einnig á að Gagnheiði setti jafnframt eitt dægurlágmarksmet fyrir landið þegar lágmarkshitinn þann 22. júní mældist -4,9 stig. Þetta er 1,5 stigum neðar en fyrra met, sem sett var í Sandbúðum á Sprengisandi þennan dag 1978.

Lesa má veðurvef Trausta Jónssonar hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is