Ekki er allt sem sýnist. Sykurlausir gosdrykkir fita ekkert síður en þeir hefðbundnu
Umfangsmikil rannsókn á áhrifum sykurlausra gosdrykkja leiðir í ljós að slíkir drykkir eru ekki síður fitandi en hefðbundnir gosdrykkir og eru því varla heilsusamlegri leið til að njóta slíkra drykkja.
Þetta leiðir bandarísk rannsókn í ljós en hún náði yfir tíu ára tímabil þar sem fylgst var sérstaklega með tæplega 500 einstaklingum sem drukku sykurlausa, diet, gosdrykki. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á fundi hjá bandarísku sykursýkisamtökunum á dögunum.
Í ljós kom að yfir þetta tíu ára tímabil jókst magafita 70 prósent hjá þeim hópi umfram viðmiðunarhóp sem ekki snerti slíka drykki. Þeir sem drukku tvo sykurlausa gosdrykki daglega á sama tíma urðu fimm sinnum breiðari um mittið en þeir sem létu slíka drykki alfarið eiga sig.
Með breiðara mitti jukust einnig aðrir áhættuþættir eins og hætta á sykursýki, hjartasjúkdómum, krabbameini og öðrum alvarlegum heilsuvandamálum.
Ástæðu þessa má rekja til sætuefna sem í sykurlausum drykkjum eru. Slík efni geta haft þau áhrif að matarlyst eykst en ólíkt hefðbundnum sykri er ekkert í sætuefnum sem kveður hungur í kútinn.
Nánar hér.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
