Fimmtudagur 07.07.2011 - 15:16 - Ummæli ()

Hvar er fjöldahreyfingin með ESB? Andstæðingar fara hamförum um kölska í Brussel

Það er ekki nóg að hinn glaðbeitti utanríkisráðherra sé upp á sitt allra besta í Brussel. Hann er skemmtilegur og er örugglega að slá þar í gegn. Það er smáhuggun, segir Kolbrún, ósátt við skipulagsleysi ESB-sinna.

„Hvar er fjöldahreyfingin sem styður inngöngu Íslands í Evrópusambandið?“ spyr Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður í pistli í Morgunblaðinu í dag.

„Enginn þungi er í umræðunni um Evrópusambandið nema hjá þeim sem berjast gegn aðild og fara reglulega hamförum í dagblöðum og á netinu,“ segir Kolbrún sem sjálf vinnur í höfuðstöðvum íslenska ESB-andstæðinga við Hádegismóa, og segir um ESB-andstæðinga:  “Engu er líkara en þessi hópur telji samastað kölska vera í Brussel. Maður andvarpar mæðulega yfir þessum mönnum á hverjum degi, en það er þó allavega líf í þeim.“

„Það er enginn álíka kraftur í Evrópusambandssinnum sem eiga vægast sagt erfitt starf fyrir höndum við að fá þjóðina á sitt band. Best er fyrir þá sjálfa að horfast í augu við þá nöturlegu staðreynd.“

„Samfylkingin mun aldrei landa þessu baráttumáli sínu upp á eigin spýtur,“ segir Kolbrún. “Það nægir ekki að flokksforysta eins flokks styðji aðild að Evrópusambandinu. Aðrir flokkar þurfa að koma að því máli. Evrópusinnaðir framsóknarmenn og sjálfstæðismenn eru á stangli hér og þar en mynda ekki röskan og samstæðan hóp og hafa flokksforystu sína ekki með sér heldur á móti sér. Þótt Samfylkingarmenn fullyrði svo borubrattir að innan Vinstri-grænna finnist æstir stuðningsmenn Evrópusambandsins þá leyfir maður sér að efast stórlega um innihald þeirrar fullyrðingar. „


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is