Lýgur Morgunblaðið viljandi upp á forsætisráðherra? Svo segir aðstoðarmaðurinn
Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, segir Morgunblaðið fara vísvitandi með rangt mál um fyrirhugaðan fund Jóhönnu og forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, um miðjan júlí.
Morgunblaðið hefur ítrekað sagt frá því að Jóhanna hafi ekki gefið sér tíma til að hitta hinn kínverska kollega sinn 14. júlí, eins og ákveðið hafi verið, og að hún hafi engar skýringar gefið á því að fundum með honum hafi verið aflýst. Morgunblaðið greinir einnig frá því að hundrað manna viðskiptasendinefnd hefði fylgt ráðherranum í heimsókninni, ef af henni hefði orðið, og gefur í skyn að Íslendingar missi af stórum viðskiptasamningum vegna þessa.
Hrannar segir þetta tóma vitleysu í Morgunblaðinu. Jóhanna hafi verið búin að samþykkja fund með kínverska ráðherranum hinn 14. júlí, en svo hafi ferðaplön hans breyst og nú sé unnið að því að finna nýja dagsetningu. Hann segir að Morgunblaðinu hafi margsinnis verið bent á hið rétta í málinu, bæði með upplýsingum frá forsætisráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu og kínverska sendiráðinu, en allt komi fyrir ekki – Morgunblaðið haldi áfram að fara með rangt mál.
Það er Agnes Bragadóttir blaðamaður sem skrifar fréttir um málið fyrir hönd Morgunblaðsins.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
