Viðskipti Mánudagur 11.07.2011 - 11:06 - Ummæli ()

Guðmundur Andri: Davíð og Ólafur Ragnar enda saman í Framsókn fyrr en varir

Ólafur Ragnar er höfundur þeirrar hugmyndar að Ísland gangi í Asíu, segir Guðmundur Andri.

Gamlir óvildarmenn verða pólitískir rekkjunautar, eins og dæmi eru um frá fyrri tíð. Þannig munu Ólafur Ragnar Grímsson og Davíð Oddsson enda saman í Framsóknarflokknum fyrr en varir, segir Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur í grein í Fréttablaðinu í dag.

Í greininni lýsir hann þremur tegundum andstæðinga þess „að niðurstaða fáist í aðildarviðræður Íslands að ESB.“ Einn flokkinn skipa þjóðernissinnar, að sögn Guðmundar, sem „enn hafa ekki hrist af sér stórveldisdrauma útrásaráranna um séreðli Íslendinga, sérstakt hlutverk Íslendinga á jörðinni og þá miklu gróðavon sem fólgin sé í því að vera Íslendingur.“

Guðmundur Andri heldur áfram:

„Þessir menn telja að Íslendingar eigi síður samleið með lýðræðisþjóðum Evrópu en einræðis- og trúræðisríkjum Asíu – þau eru nefnilega svo rík. Helsti höfundur þessarar hugmyndar er Ólafur Ragnar Grímsson sem raunar hefur talað ötullega fyrir því allt frá formannstíð sinni í Alþýðubandalaginu að Ísland gangi í Asíu – gott ef ekki Sameinuðu arabísku furstadæmin í seinni tíð. Samherji hans Davíð Oddsson telur hins vegar enn ekki útséð með að ameríski herinn komi hingað aftur og Íslendingar geti aftur farið að skrúfa frá þeim mikla krana.

Gamlir óvildarmenn verða hálfnauðugir rekkjunautar í baráttunni gegn veruleikanum. Hannes Hafstein og Björn Jónsson urðu þannig samherjar undir lok sinnar pólitísku ævi í Sambandsflokknum og þannig verður það líka með Davíð og ÓRG: þeir enda saman í Framsóknarflokknum fyrr en varir.

Mótsögnin í þessu sjálfstæðisglamri öllu er að vísu sú að eins og málum er háttað taka Íslendingar við ótal lögum og reglugerðum frá ESB án þess að hafa neitt um þær að segja, gegnum EES. Sumir vilja að við segjum okkur úr EES og EFTA og allri Evrópu-viðurstyggðinni, sem vissulega væri rökrétt – vissulega sjónarmið – en óneitanlega efnahagslegt glapræði, nema menn sjái fyrir sér þeim mun fleiri jarðhitavirkjanir á vegum Íslendinga í Abú Dabí og landvinninga á Norðurpólnum.“

Grein Guðmundar Andra í heild má lesa hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is