Viðskipti Miðvikudagur 20.07.2011 - 15:07 - Ummæli ()

Bandaríkin beiti refsiaðgerðum vegna hvalveiða Íslendinga: Jón Bjarnason er undrandi

Bandarísk stjórnvöld eru í þann veginn að tilkynna um að þau muni nýta sér lagaheimild til að undirbúa refsiaðgerðir gegn Íslendingum vegna hvalveiða,  samkvæmt nýrri frétt frá AP-fréttastofunni.

Bæði getur orðið um viðskiptahindranir og innflutningshöft og diplómatískar aðgerðir að ræða. Aðgerðunum verður beitt á þeim forsendum að Íslendingar hafi ekki virt alþjóðlegt bann við hvalveiðum í viðskiptaskyni.

Í yfirlýsingu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir að Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, lýsi undrun sinni á þessu skrefi bandaríkjastjórnar. Hvalveiðar Íslendinga byggist á traustum vísindalegum grunni og séu sjálfbærar.  Í yfirlýsingunni segir:

„Bandarísk stjórnvöld eru ekki sjálfum sér samkvæm þegar þau gagnrýna langreyðarveiðar Íslendinga annars vegar en óska eftir stuðningi Íslands og annarra aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins við kvóta sinn af norðhval við Alaska hins vegar. Tekið skal fram að Ísland hefur stutt umræddar hvalveiðar Bandaríkjanna enda eru þær sjálfbærar. Hins vegar liggur fyrir að veiðar Íslendinga á langreyði eru ekki síður sjálfbærar en veiðar Bandaríkjamanna á norðhval.

Þess ber að geta að bandarísk stjórnvöld hafa reglulega útnefnt Japan og Noreg samkvæmt Pelly-ákvæðinu, Japan vegna hvalveiða í vísindaskyni en Noreg bæði vegna vísindaveiða og atvinnuveiða. Ísland hefur einu sinni áður verið útnefnt samkvæmt Pelly-ákvæðinu, árið 2004 vegna upptöku vísindaveiða á hrefnu. Ekki hefur verið gripið til neinna viðskiptaþvingana í þessum tilvikum.“

AP segir að ríkisstjórn Obama muni í dag beita heimildarákvæði í lögum og skrá Ísland á lista sem forsetinn getur beitt refsiaðgerðum vegna brota á alþjóðlegum sáttmálum um dýravernd. Forsetinn mun því frá og með deginum í dag hafa sextíu daga frest til þess að taka ákvarðanir um í hverju refsiaðgerðirnar verði fólgnar.

AP segir að stundum hafi það reynst nóg að hóta refsiaðgerðum til þess að þau lönd sem þær beinast að breyti háttum sínum í samræmi við vilja bandarískra yfirvalda.

Í síðustu viku lauk fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins án árangurs eftir að fulltrúar hvalveiðiþjóðanna Íslands, Noregs og Japan gengu af fundi til að lýsa andstöðu við þann mikla meirihluta þjóða, með Bandaríkin í broddi fylkingar, sem eru andvígar hvalveiðum.

Aðgerðirnar sem bandaríkjastjórn er nú með í undirbúningi geta meðal annars, samkvæmt lagaheimildinni sem um ræðir, falið í sér höft við innflutningi á íslenskum fiski til Bandaríkjanna, amk ef fyrirtækin sem um ræðir taka þátt í hvalveiðum.

Eins og Eyjan rakti á dögunum hafa breskir verndarsinnar undirbúið aðgerðir gegn HB Granda vegna þess að formaður og varaformaður stjórnar fyrirtækisins eru þeir Árni Vilhjálmsson og Kristján Loftsson, sem jafnframt eru forstjóri og stjórnarformaður Hvals.

Aðgerðirnar munu einnig, að sögn AP, fela í sér að forsetinn verður hvattur til þess að beita diplómatískum refsiaðgerðum, sem ná allt frá því að bandarískir stjórnarerindrekar beiti Íslendinga enn frekari þrýstingi um að láta af hvalveiðum og til þess að meðlimir í ríkisstjórn Bandaríkjanna sniðgangi öll boð um heimsóknir til Íslands. Einnig mundu bandarískir stjórnarerindrekar draga sig út úr öllum samskiptum við Íslendinga á vegum alþjóðastofnana, til dæmis í Norðurslóðaráðinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is