Miðvikudagur 20.07.2011 - 21:44 - Ummæli ()

Bloggari krefur bæjarstjóra um afsökunarbeiðni

Kápa bókarinnar umdeildu.

Harpa Hreinsdóttir, bloggari á Akranesi, krefst þess að Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri, biðjist afsökunar á að kalla skrif hennar um sögu Sögu Akraness „þruglið sem bloggari einn hér í kaupstaðnum hefur staðið fyrir linnulítið undanfarnar vikur.“

Hún segir að bæjarstjórinn geti ekki verið þekktur fyrir að fara með fleipur og vega að mannorði sínu og krefst þess að hann rökstyðji mál sitt eða biðji sig afsökunar.

Eins og Eyjan hefur rakið hefur Harpa í fjölmörgum, ítarlegum bloggfærslum fjallað um 14 ára ritunarsögu Sögu Akraness, sem kostaði bæjarsjóð 105 milljónir króna að núvirði. Allar áætlanir um tímaramma og kostnað gengu hvað eftir annað úr skorðum á tímabilinu. Harpa hefur einnig fært líkur að því að meðferð heimilda við ritun Gunnlaugs Haraldssonar á sögunni sé verulega ábótavant.

Í síðustu viku fjallaði Árni Múli Jónasson bæjarstjóri Akraneskaupstaðar í grein í Skessuhorni um ritdóm Páls Baldvins Baldvinssonar um Sögu Akraness, sem var efnislega mjög á sömu leið og skrif Hörpu, og vék bæjarstjórinn í grein sinni óvirðulegum orðum að umfjöllun hennar um söguna. Þar er haft eftir bæjartjóranum: „Mér sýnist Páll af einhverjum óútskýrðum ástæðum hafa ákveðið að éta gagnrýnislaust upp þruglið sem bloggari einn hér í kaupstaðnum hefur staðið fyrir linnulítið undanfarnar vikur.“

Harpa ætlar ekki að sitja þegjandi undir orðum bæjarstjórans og endurbirtir á bloggi sínu í kvöld grein sem hún sendi Skessuhorni og birtist í blaðinu í dag. Þar segir hún:

Ég geri ráð fyrir að umræddur bloggari sé ég sjálf því ég hef rakið sögu sagnaritunar um Akranes, aðallega frá 1956 til dagsins í dag, í 15 tölusettum bloggfærslum og byggt á rituðum heimildum sem flestar eru opinber gögn Akraneskaupstaðar. Einnig hef ég skrifað yfirlitsfærslu yfir sagnaritunina 1987-2011, skrifað eina færslu um hluta Sögu Akraness I eftir Gunnlaug Haraldsson og eina færslu til að svara hörðum viðbrögðum við þeirri færslu, þ.á.m. orðum Árna Múla Jónassonar bæjarstjóra sem voru algerlega órökstudd. Þessar 18 færslur í færsluflokknum Saga Sögu Akraness birtust frá apríllokum til júníloka nú í ár.

Fundargerðir ritnefndar, bæjarstjórnar og bæjarráðs eru vissulega oft illa orðaðar og má stundum finna í þeim mál- og stafsetningarvillur en mér finnst nokkuð langt gengið að kalla þær þrugl. Sama gildir um aðrar beinar tilvitnanir í færsluflokknum Saga Sögu Akraness á harpa.blogg.is, t.d. í bæjarstjórnarmenn og Árna Múla sjálfan. Ég reikna með að Árni Múli bæjarstjóri eigi við færsluflokkinn í heild úr því hann talar um „þruglið … linnulítið undanfarnar vikur.“

Bæjarstjóri Akraneskaupstaðar getur ekki verið þekktur fyrir að fara með fleipur og vega að mannorði mínu.

Þess vegna á Árni Múli Jónasson bæjarstjóri að rökstyðja með dæmum að bloggfærslur mínar séu þrugl. Geti hann ekki gert það ætti hann að biðja mig afsökunar á orðum sínum á síðum Skessuhorns, sem er miðillinn sem hann hefur sjálfur kosið að tjá sig í. “

Sjá blogg Hörpu frá í kvöld.

Fyrri umfjöllun um málið hér hér og hér


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is