Kirkjan býður fórnarlömbum Ólafs biskups bætur. Hver um sig fær fjórar milljónir

Viðurkenna ekki sök Ólafs biskups en viðurkenna að hafa breytt rangt gagnvart konum þeim er ásökuðu Ólaf um kynferðisbrot
Þjóðkirkjan hefur ákveðið að bjóða þeim fjórum konum er sakað hafa Ólaf Skúlason, fyrrum biskup, um kynferðisbrot á árum áður sanngirnisbætur. Tekur upphæðin mið af bótum sem ákveðnar voru til handa þeim er dvöldu við slæman aðbúnað á vistheimilum ríkisins og ættu því konurnar hver um sig að fá fjórar til fimm milljónir.
Segir Magnús E. Kristjánsson, formaður úrbótanefndar þjóðkirkjunnar, við Fréttablaðið af þessu tilefni að bætur þessar séu hluti af sátt milli kvennanna og kirkjunnar.
Vonast Magnús að samkomulag náist í þessari viku en þar með viðurkennir kirkjan að móttökur og málsmeðferð sú er konurnar fjórar fengu eftir að hafa stigið fram hafi verið rangar.
Pétur H. Hafstein, forseti kirkjuþings, ítrekar þó að með greiðslunni sé kirkjan ekki að fallast á sök Ólafs biskups.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is