Fimmtudagur 28.07.2011 - 10:27 - Ummæli ()

Hlaup hafið í Skaftá. Fólk varað við að vera nálægt upptökum árinnar

Nýtt Skaftárhlaup er hafið og fólk hvatt til að vera á varðbergi vegna þess

Hlaup er að hefjast í Skaftá samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum en vatnamælingamenn Veðurstofu Íslands hafa staðfest það. Ekki er búist við stóru hlaupi.

Eru íbúar og ferðafólk hvatt til að vera ekki nálægt upptökum árinnar eða í lægðum meðfram ánni sökum brennisteinsmengunar en slík getur skaðað augu og öndunarveg.

Í Skaftárhlaupum getur vatn farið yfir Skaftártunguveg við Hvamm og vegurinn í Skaftárdal lokast. Þá kemur fyrir að vatn fari yfir veginn við Hólaskjól á Fjallabaksleið nyrðri. Upptök Skaftár eru í Skaftárjökli í Vatnajökli austan við Langasjó.

Óðinn Þórarinsson, framkvæmdastjóri athugana og tæknisviðs Veðurstofunnar, segir við Vísi að sólarhringur gæti liðið þangað til hlaupið gæti farið að sjást í byggð en stutt er síðan vatnamælingamenn fengu fyrstu vísbendingar um að hlaup væri að hefjast.

Ekki er þó búist við stóru hlaupi þar sem hlaupið hafi úr báðum Skaftárkötlum fyrir ári síðan.

Eyjan mun flytja frekari fregnir af hlaupinu eftir því sem þær berast.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is