Skattahækkanir eða niðurskurður? Tekist á um fjárlagagerð næsta árs.

Ríkissjóður er ekki burðugri en svo að valið stendur annaðhvort um meiri hækkanir á sköttum eða grimmari niðurskurð
Stjórnarflokkarnir tveir takast töluvert á það þessa dagana hvort hækka eigi skatta frekar á næsta ári eða beita harkalegri niðurskurði í ríkisfjármálunum en fyrirhugað var. Vinstri grænir fyrir fremur hækka álögur en þingmenn Samfylkingarinnar vilja taka ríkisútgjöldin fastari tökum með niðurskurði.
Fjallar Morgunblaðið um þetta en sérstakur fjárlagahópur hittist ört þessa dagana ásamt fulltrúum fjárlaganefndar Alþingis enda á vinnu við fjárlagafrumvarpið að ljúka í fyrstu viku ágúst.
Er málið flóknari nú í kjölfar þess að ríkisreikningur síðasta árs sýndi meiri halla en búist var við og munaði þar rúmum 40 milljörðum króna. Sú staðreynd setur strik í þá áætlun stjórnvalda að ná ríkisrekstrinum hallalausum strax árið 2013. Óttast sumir að verði vikið frá markaðri stefnu í þessum málum muni það hafa alvarleg áhrif út á við og jafnvel verða til þess að lánshæfi Íslands lækki enn frekar erlendis.
Þá er málið ekki síður viðkvæmt sökum þess að stjórnin hefur einungis eins manns meirihluta á þinginu og þarf því aðeins einn einasta þingmann til að setja allt í uppnám.
Er innan Samfylkingarinnar nokkur andstaða við aukna skatta á heimili og fyrirtæki landsins en fjármálaráðherra hefur látið vinna tillögur þess efnis. Vilja þingmenn Samfylkingar fremur beita niðurskurðarhnífnum harkalegar meðan Vinstri grænir eru á öndverðri skoðun.
Stærstur hluti af útgjöldum ríkissjóðs eru laun og þeir sem andmæla tillögum um harðari niðurskurð hafa bent á að tillögurnar feli í sér fjöldauppsagnir ríkisstarfsmanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is