Fimmtudagur 28.07.2011 - 13:43 - Ummæli ()

Vangreiddir skattar breyta ekki ríkishalla síðasta árs

Ógreiddir skattar eru hærri en allur hallarekstur ríkisins á síðasta ári

Hvernig sem til tekst að innheimta vangreidda skatta mun ríkisreikningur ársins 2010 ekki taka neinum breytingum. Það gæti hins vegar haft áhrif á ríkisreikning yfirstandandi árs.

Vakti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, máls á því í gær að útistandandi skatttekjur ríkisins við lok síðasta árs hefðu numið 127 milljörðum króna eða sem næmi hærri upphæð en öllum hallarekstri ríkissjóðs það ár. Vildi Sigmundur vita af því tilefni hver væri þannig raunveruleg staða ríkissjóðs.

Aðstoðarmaður fjármálaráðherra, Huginn Þorsteinsson, bendir á í samtali við fréttastofu RÚV að rekstrarniðurstaða sýni aðeins þær tekjur sem sannarlega komu í ríkiskassann. Eðlilega sé því ekki tekið til vangreiddra skatta.

Hins vegar geti þessar útistandandi skattskuldir haft áhrif á stöðu ríkisreikningsins fyrir yfirstandandi ár að því gefnu að innheimta þeirra gangi vel.

Tekur Huginn ekki undir þau orð Sigmundar að halli á ríkissjóði hérlendis sé svipuð og gerist hjá Grikkjum og Spánverjum. Óvíða hafi náðst jafn mikill árangur í að rétta af halla ríkissjóðs og hér og sá árangur meðal annars gert ríkinu kleift að afla sér lánsfjár erlendis.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is