Fimmtudagur 04.08.2011 - 19:25 - Ummæli ()

Forstöðumenn hjá ríkinu fúlir. Hóta aftur málaferlum vegna lágra launa

Forstöðumenn ríkisstofnanna vilja fá hærri laun og það afturvirkt frá árinu 2009

Forstöðumenn ríkisstofnana íhuga öðru sinni á skömmum tíma að hefja málaferli gegn ríkinu vegna lágra launa sinna en skammt er síðan laun þeirra hækkuðu um 4,9 prósent. Það er þó aðeins hluti þess sem forstöðumennirnir telja sig hafa verið hlunnfarna um eftir launalækkun þá er Alþingi ákvað 5 til 15 prósent lækkun á laun þeirra árið 2009.

Telur forstöðumaður Félags forstöðumanna ríkisstofnanna, Magnús Guðmundsson, nýlega launahækkun um tæp fimm prósent ekki duga til og segir marga forstöðumenn á lágum launum. Segir hann 600 til 900 þúsund króna mánaðarlaun algeng meðal forstöðumanna og augljóst sé að það geti ekki flokkast sem há laun í samanburði við þá er hæst hafa launin í þjóðfélaginu að því er fram kemur í fréttum Stöðvar 2.

Telja forstöðumennirnir að þeir eigi inni þá lækkun sem tímabundið var sett á 2009 og sumir séu á því að láta reyna á þann rétt fyrir dómstólum. Að minnsta kosti eigi þeir inni hækkun sem koma átti til í desember á síðasta ári sem ekkert varð úr vegna launafrystingar.

Félagsmenn hótuðu einnig málaferlum í maí síðastliðnum en hafa í millitíðinni fengið fyrrnefnda 4,9 prósenta hækkun.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is