Föstudagur 05.08.2011 - 13:25 - Ummæli ()

500 milljarða gjaldþrot þriggja eignarhaldsfélaga: Þrjátíu mál – einn dómur fallinn

Aðeins er fengin niðurstaða í eitt af hátt í þrjátíu riftunar- og skaðabótamálum sem skiptastjórar þriggja stærstu þrotabúanna (að bönkunum frátöldum) hafa höfðað eftir bankahrunið, að því er fram kemur í Fréttatímanum í dag.

Þetta eru þrotabú eignarhaldsfélaganna Fons í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar, Baugs Group í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, og Milestone, í eigu Karls og Steingríms Wernerssona. Öll urðu þau gjaldþrota á árinu 2009 og kröfur í þau námu alls hátt í 500 milljörðum króna samtals.

Niðurstaða er fengin í mál þrotabús Baugs Group gegn Karli Georg Sigurbjörnssyni, lögmanni, en langflest hin eru ennþá á fyrirtökustigi í dómskerfinu,  segir í Fréttatímanum, þar  sem fram kemur að bústjórunum þyki málsmeðferðin ganga eðlilega fyrir sig.

Erlendur Gíslason, skiptastjóri Baugs, segir við blaðið að hann hafi höfðað fimm riftunarmál á hendur aðilum sem tengjast Baugi og eitt skaðabótamál gegn Jóni Ásgeiri þar sem gerð er krafa upp á 15 milljarða króna vegna sölu á Högum.  Erlendur segir  von á niðurstöðu í tveimur málum til viðbótar á næstunni.

Grímur Sigurðsson, skiptastjóri Milestone, hefur að sögn Fréttatímans höfðað  tíu riftunarmál gegn Karli og Steingrími Wernerssonum  og félögum í þeirra eigu.

Óskar Sigurðsson, skiptastjóri í Fons, segist hafa höfðað þrettán riftunarmál. Eitt þeirra snýst um sextíu milljóna króna verktakagreiðslu til Almars Arnar Hilmarssonar, sem var forstjóri flugfélagsins Sterling, en í öðru er tekist á um  4,2 milljarða króna arðgreiðsla Fons til félags sem heitir Matthews Holdingí Lúxemborg, og Pálma Haraldssyni og Jóhannesi Kristinssyni.  Óskar segir að við rekstur málanna hafi þurft að fá matsgerðir og beðið sé eftir niðurstöðu í því. Málin séu engu að síður í eðlilegum farvegi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is