Föstudagur 05.08.2011 - 14:30 - Ummæli ()

Jón Daníelsson: Væntingar um nýtt myntbandalag Norður-Evrópu

Jón Daníelsson: "Ég held að það sé borðliggjandi að á næstu tveimur árum verði vextir í Evrópu á hraðri uppleið. Það ætti ekki að koma neinum á óvart ef vextir Seðlabanka Evrópu væru komnir í 5% eftir tvö ár. Menn óttast óðaverðbólgu."

„Það eru ákveðnar væntingar um að það muni myndast nýtt myntbandalag Norður-Evrópu,“ segir Jón Daníelsson, dósent í hagfræði við London School of Economics, í samtali við Morgunblaðið í dag um mat manna á þróun mála á evrusvæðinu.

„Ef ríkjum Evrópu tekst að ná tökum á evrunni og skuldavanda ákveðinna landa má alveg búast við að efnahagslífið taki tiltölulega hratt við sér,“ segir Jón. „Ef það tekst hins vegar ekki að eyða óvissunni má búast við að þá fari ástandið að eitra út frá sér og hafa neikvæð áhrif á Norður-Evrópuríkin. Ég geri ráð fyrir að á næsta ári munum við sjá hvorum megin hryggjar þetta lendir.“

„Bein verðbólga ein og sér í löndunum sem við erum að flytja út til er ekki áhyggjuefni. Það sem Íslendingar þurfa að hafa áhyggjur af er að samdráttur í Evrópu fari að hafa áhrif á kaup á lúxusvörum – þar með talið fiski,“ segir hann.

„Á einhverju stigi málsins munu seðlabankar Evrópu þurfa að taka þá ákvörðun, bæði í Evrópu og Bretlandi, hvort búa eigi við langvarandi háa verðbólgu eða hækka vexti. Það er mikið rætt um þetta í Bretlandi núna. Seðlabankar í Evrópu stefna í þá átt að snarhækka vexti. Ég held að það sé borðliggjandi að á næstu tveimur árum verði vextir í Evrópu á hraðri uppleið. Það ætti ekki að koma neinum á óvart ef vextir Seðlabanka Evrópu væru komnir í 5% eftir tvö ár. Menn óttast óðaverðbólgu,“ segir Jón og miðar þar við 10% verðbólgu.

„Grikkland er eina landið í Evrópu sem hefði hag af því að taka upp sinn gamla gjaldmiðil. Ef Ítalía tæki upp líruna aftur myndi lántökukostnaður rjúka svo upp að það setti landið í gjaldþrot eða þá búa til óðaverðbólgu. Skuldsettustu evruríkin hafa ekki efni á að taka gamla gjaldmiðilinn upp og þess vegna reyna þau að gera allt sem þau geta til að ná tökum á ástandinu,“ segir Jón.

„Ef vöxtum verður haldið of lágum of lengi, með þeim afleiðingum að verðbólgan fer af stað í Evrópu, verður mjög dýrt að ná tökum á verðbólgunni síðar. Þá gæti þurft að keyra vextina upp, á sama tíma og illa árar í efnahagslífi álfunnar. Það er sorglegt hversu Evrópuþjóðunum gengur illa að ná tökum á ástandinu og hversu lítinn skilning evrópskir stjórnmálamenn virðast hafa á fjármálamörkuðum. Þeir tala óvarlega og valda skaða með ummælum sínum,“ segir Jón. „Það má ekkert koma fyrir á Ítalíu til að allt fari í kaldakol.“ Belgía standi einnig á brúninni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is