Mánudagur 08.08.2011 - 08:18 - Ummæli ()

Markaðir í Evrópu standast álagið. Lítilleg hækkun það sem af er degi

Íslendingar í nokkru vari fyrir fjármálavandræðum erlendis en slíkt gæti þó haft áhrif á gengi krónu og verðlag í kjölfarið

Fyrstu klukkustundirnar á mörkuðum í Evrópu gefa ekki í kynna að fjárfestar séu að flýja í hrönnum eins og óttast var í kjölfar lækkunar matsfyrirtækisins Standard & Poor´s á lánshæfi Bandaríkjanna á föstudagskvöldið. Markaðir í London og Frankfurt hækkuðu lítillega meðan töluvert verðfall hefur orðið á mörkuðum Asíu sem opnuðu fyrr.

Eins og Eyjan hefur greint frá hafa ýmsir óttast hið versta og jafnvel upphaf nýrrar og djúprar heimskreppu í kjölfar lækkunar S&P á lánshæfi Bandaríkjanna en slík lækkun hefur aldrei orðið áður.

Markaðir í Asíu sem opnuðu í nótt að íslenskum tíma féllu nokkuð og fór Nikkei vísitalan í Tokíó niður um 2,2 prósent strax við opnun þar.

Gylfi Zoëga, hagfræðingur, segir við Fréttablaðið í dag að Ísland sé nokkuð í skjóli fyrir hremmingum þeim er eiga sér nú stað í fjármálaheiminum. Helgast það af því að bankarnir fóru á hausinn 2008 og reiða sig ekki lengur á fjármögnun erlendis frá. Verð á út- og innflutningsvörum gæti þó breyst og það haft áhrif á gengi krónunnar og lífskjör hérlendis.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is