Fjármálaráðherra: Efnahagsumrót Evrópu lítil áhrif hér til skamms tíma

Steingrímur segir ljóst að endurskoða þurfi ESB aðild ef Evrópa nær ekki tökum á evruvandamálum sínum
Umrót það á erlendum fjármálamörkuðum og þá sérstaklega í Evrópu munu varla hafa mikil áhrif hérlendis til skamms tíma að mati Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, en áhrif til lengri tíma gætu haft neikvæðar afleiðingar.
Forvitnaðist Morgunblaðið um sýn ráðherrans á framvindu mála í Evrópu en þar berst nú Seðlabanki Evrópu við að koma fleiri og fleiri þjóðum til hjálpar. Keypti bankinn um helgina í fyrsta skipti ríkisskuldabréf bæði Spánar og Ítalíu en hafði fram að því aðeins keypt skuldir Írlands og Portúgal.
Sér Steingrímur fyrir sér að óvissa með framhaldið í Evrópu muni ekki koma niður á Íslandi til að byrja með. Hins vegar sé alvarlegast til lengri tíma litið að viðskiptakjör útflutningsstarfseminnar gætu versnað og hafa mögulega neikvæð áhrif á fjárfestingar.
Aðspurður um áhrif þessa á aðild að Evrópusambandinu segir Steingrímur grannt fylgst með hvernig Evrópu takist að taka á vanda sínum.
„Við hljótum að horfa á það hvort evruhópurinn reynist þeim vanda vaxinn að taka á minni og meðalstórum aðildarríkjum sem eru í vandræðum. Ef ekki, þá hlýtur það að hafa áhrif á viðhorf manns til þess hversu skilvirkt þetta samstarf er. Verði breyting þar á þurfi til þess nýjar og sjálfstæðar ákvarðanir á vegum Alþingis.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is