SVÞ: Tollalögin brjóta gegn stjórnarskrá að mati Umboðsmanns Alþingis

Framkvæmdastjóri SVÞ segir tollalöggjöfina andstæða stjórnarskránni samkvæmt niðurstöðu Umboðsmanns alþingis.
Íslensk tollalöggjöf frá árinu 1995 er andstæð stjórnarskránni að mati Umboðsmanns Alþingis þar sem hún veitir landbúnaðarráðherra of miklar heimildir til að leggja tolla á innfluttar landbúnaðarvörur.
„Þetta er alvarlegt mál, alvarlegur afellisdómur yfir stjórnsýslunni og löggjöfinni,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu um niðurstöðu umboðsmanns í samtali við fréttastofu RÚV.
Hann segir ennfremur að eftir að Jón Bjarnason tók við ráðherraembættinu hafi tollar hækkað upp úr öllu valdi, Jón hafi sett á ólöglega verðtolla í stað magntolla sem leiði til þess að innflutningur falli um sjálfan sig.
Þegar við bætist 50% gengishrun íslensku krónunnar á síðustu árum sé fótum algjörlega kippt undan öllum innflutningi: „Það er ekki nokkur leið að bjóða þessa vöru á verði sem er samkeppnishæft,“ segir Andrés.
Nýlega var yfir 114% tollur lagður á 100 kíló af nautakjöti sem fyrirtækið Innnes ætlaði að selja íslenskum neytendum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is