Föstudagur 12.08.2011 - 16:30 - Ummæli ()

Ríkislögreglustjóri svarar Sjálfstæðisflokknum: Þarf að rökstyðja kærur, ekki rétt að maðurinn hafi játað

Ríkislögreglustjóri gerir harkalegar athugasemdir við  yfirlýsingar lögmanns Sjálfstæðisflokksins í kvöldfréttum RÚV í gær um að embættið heimtaði allt of mikil gögn af kærendum.

Tilefnið var umfjöllun um að Sjálfstæðisflokkurinn hefur enn ekki, að mati lögreglunnar, lagt fram viðunandi kæru gegn Páli Heimissyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra samtaka norrænna hægri flokka, sem var grunaður um 20 milljóna misferli með fé umbjóðenda sinna.  Ríkislögreglustjóri segir rangt sem staðhæft hefur verið að maðurinn hafi játað athæfið enda hafi hann aldrei verið yfirheyrður.

Í yfirlýsingu sinni minnir Ríkislögreglustjóri á að kærendur í efnahagsbrotum þurfi að rökstyðja kærur sínar og kæruefni enda geti þeir borið ábyrgð á röngum kærum og sakargiftum: „Sú sjálfsagða krafa er gerð að kærendur þurfa að rökstyðja kærur sínar og kæruefni enda geta þeir borið ábyrgð að lögum á röngum kærum og sakargiftum. Efnahagsbrotadeild hefur óskað eftir svörum við ákveðnum staðhæfingum sem kærandi hefur haldið fram en samræmdust ekki gögnum málsins. Þeim hefur ekki verið svarað.“

„Yfirlýsingar um að játning liggi fyrir í máli þessu eru ekki frá efnahagsbrotadeild komnar enda hefur enginn verið yfirheyrður af lögreglu,“ segir þar ennfremur.

Yfirlýsing Ríkislögreglustjóra er birt í heild hér á eftir:

Vegna ummæla lögfræðings Sjálfstæðisflokksins í kvöldfréttum Ríkissjónvarps í gærkvöldi um málsmeðferð efnahagsbrotadeildar á kæru hans til deildarinnar vill ríkislögreglustjóri geta um eftirfarandi:

Nýverið var því haldið fram í fréttum RÚV af formanni Lögmannafélags Íslands að dæmi séu um að efnahagsbrotadeild fari fram á það við kærendur að þeir afli gagna sem aðeins embættið sjálft er í aðstöðu til að afla. Formaðurinn nefndi hins vegar engin dæmi um slíkt og var þessari fullyrðingu vísað á bug. Bent var á að efnahagsbrotadeild berast kærur sem vísa þarf frá af ýmsum ástæðum eða kæranda er gefinn kostur á að bæta úr þar sem kærurnar uppfylla  ekki skilyrði um opinbera rannsókn. Kæra Sjálfstæðisflokksins er þeim annmörkum háð og var kæranda ítrekað gefinn kostur á að bæta úr annmörkum kærunnar, en mikil bókhaldsgögn fylgdu kærunni.

Sú sjálfsagða krafa er gerð að kærendur þurfa að rökstyðja kærur sínar og kæruefni enda geta þeir borið ábyrgð að lögum á röngum kærum og sakargiftum. Efnahagsbrotadeild hefur óskað eftir svörum við ákveðnum staðhæfingum sem kærandi hefur haldið fram en samræmdust ekki gögnum málsins. Þeim hefur ekki verið svarað.

Yfirlýsingar um að játning liggi fyrir í máli þessu eru ekki frá efnahagsbrotadeild komnar enda hefur enginn verið yfirheyrður af lögreglu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is