Þriðjudagur 16.08.2011 - 16:26 - Ummæli ()

Fyrrverandi þingmaður Framsóknar og þrír dómarar sækja um að komast í Hæstarétt

Fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins er meðal umsækjenda um embætti hæstaréttardómara.

Nýr dómari verður settur til starfa við Hæstarétt Íslands á næstunni. Þrír héraðsdómarar og einn hæstaréttarlögmaður hafa sótt um embættið.

Umsækjendurnir eru:

Benedikt Bogason, dómstjóri við Héraðsdóm Vesturlands, sem hefur nokkrum sinnum tekið sæti sem varadómari við Hæstarétt.

Guðjón Ólafur Jónsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins.

Ingimundur Einarsson, héraðsdómari og áður héraðsdómslögmaður og aðstoðarlögreglustjóri í Reykjavík.

Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri við héraðsdóm Reykjaness.

Umsóknarfrestur rann út þann 8. ágúst en þess er nú beðið að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra skipi mann í embættið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is