Viðskipti Miðvikudagur 17.08.2011 - 15:13 - Ummæli ()

Félög um hlutabréf Sigurðar Bollasonar í bönkunum: Ellefu milljarða skuld, engar eignir og eigandinn í Lúx

Þrotabúi félaga sem voru notuð í meintum sýndarviðskiptum með hlutabréf í bönkum hafa nú verið gerð upp. Þau skilja eftir sig engar eignir en milljarða skuldir.

Ellefu milljarða skuldir en engar eignir, sem voru nokkurs virði, fundust við gjaldaþrotaskipti tveggja félaga í eigu Sigurðar Bollasonar, afhafnamannsins sem var umsvifamikill hér fram að hruni og hefur verið yfirheyrður hjá sérstökum saksóknara vegna rannsóknar á markaðsmisnotkun í Landsbankanum. DV segir frá þessu í dag.

Sigurður sem sat í stjórn FL Group um tíma og tók þátt í ýmsum viðskiptum með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Magnúsi Ármann og Þorsteini hefur nú flutt lögheimili sitt til Lúxemborgar, líkt og ýmsir  útrásarvíkingar og viðskiptafélagar þeirra. Sigurður vakti fyrst athygli þegar hann keypti stóran hlut í tískufyrirtækinu Karen Millen.

Þó má telja víst að í þessum þrotabúum félaganna hafi verið til talsvert af verðlausum hlutabréfum.

Þrjú félög í eigu Sigurðar Bollasonar fengu tíu milljarða króna að láni í júlí og ágúst 2008 og voru þeir peningar nýttir til að kaupa hlutafé í Landsbankanum, Existu og Glitni.

Eina veðið til tryggingar þessu tíu milljarða króna láni var í hlutabréfunum sjálfum, sem urðu vitaskuld verðlaus við bankahrunið nokkrum vikum síðar.

Félögin tvö sem nú er búið að gera upp hétu upphaflega S.Á. Bollason ehf og Sigurður Bollason ehf. Það fyrrnefnda skipti svo um nafn og nefndist Dot ehf., segir DV í dag.  Það skilur eftir sig sex milljarða skuldir, sem urðu til vegna kaupa á hlutabréfum fyrir um fjóra milljarða króna í Glitni, rétt fyrir hrun.  Glitnir bæði seldi Sigurði hlutabréfin og lánaði honum fyrir kaupunum með veði í bréfunum sjálfum.

Sigurður Bollason ehf., breytti einnig um nafn og gerðist  BSU ehf. Það lét eftir sig fimm milljarða skuldir vegna kaupa á 3,5 milljarða króna hlutabréfum í Landsbankanum þar sem Landsbankinn var lánveitandi og bréfin sjálf voru sett til tryggingar því láni.

Í janúar á þessu ári kom fram að Sigurður Bollason hefði verið einn margra sem kallaður var til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara vegna rannsóknar á meintri markaðsmisnotkun við sölu á hlutabréfum í Landsbankanum. Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri, var meðal annars úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna þeirrar rannsóknar.

Sigurður Bollason sendi frá sér yfirlýsingu vegna þessa í janúar og sagðist hafa stöðu vitnis við rannsóknina. Hann hefði orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni af þessum viðskiptum.

Einnig hefur komið fram á Eyjunni að Sigurður Bollason sé einn þeirra sem er til rannsóknar hjá skattyfirvöldum vegna gruns um skattundanskot með erlendum greiðslukortum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is