Fimmtudagur 18.08.2011 - 19:22 - Ummæli ()

Kvikmyndaskólinn fær ekki aukin ríkisframlög. Ekki rekstrarhæfur

Úr vöndu að ráða hjá Kvikmyndaskóla Íslands. Útséð er um að skólinn fái viðbótarfjármagn sem nauðsynlegt er talið

Kvikmyndaskóli Íslands hefur ekki sýnt fram á að hann geti uppfyllt skilyrði reglugerðar um viðurkenningu einkaskóla á framhaldsskólastigi að því er rekstrarhæfi varðar og mun ríkið því ekki auka fjárframlög til skólans að svo stöddu. Tekur Ríkisendurskoðun undir þetta mat menntamálaráðuneytisins.

Var þetta tilkynnt stjórnendum og nemendum skólans í dag en óvissa hefur ríkt í málefnum skólans í allt sumar en starfsleyfi hans rann út í lok júlí. Segjast skólastjórnendur þurfa meira fé til rekstursins til að halda honum gangandi en úr því var skorið í dag að það fá þeir ekki.

Taldi Ríkisendurskoðun aukinheldur að því er fram kemur á vef menntamálaráðuneytisins rétt að fram fari sérstök úttekt á hvernig farið hefur verið með þau framlög er skólanum hafa borist frá ríkinu.

Er nú beðið svara skólastjórnenda hvernig þeir hyggist standa við sínar skuldbindingar við nemendur sína sem eru 150 talsins en ráðuneytið mun reyna að aðstoða við slíkt með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is