Kjararáð lækkaði laun framkvæmdastjóra eftir að kona tók við starfinu

Kjararáð féll frá ákvörðun sinni að greiða minni laun fyrir sömu vinnu eftir að kona tók við starfinu af karlmanni
Kjararáð lækkaði launin fyrir stöðu framkvæmdastjóra hjá hlutafélagið í meirihlutaeigu ríkisins þegar kona tók við starfinu af karlmanni.
Kærði konan þá ákvörðun ráðsins til kærunefndar jafnréttismála í vor sem leið og féllst ráðið á að falla frá lækkuninni í kjölfarið.
Segir Morgunblaðið frá úrskurði kærunefndar vegna málsins en í febrúar á síðasta ári hafi kjararáð ákveðið almennar forsendur ákvarðana um laun og önnur starfskjör þeirra framkvæmdastjóra félaga í meirihlutaeigu ríkisins sem höfðu þá nýverið bæst í þann hóp sem undir ráðið heyrði.
Þáverandi framkvæmdastjóri vumrædds hlutafélagsar í þeim hópi og voru lán hans og starfskjör ákvörðuð í maí í fyrra. Maðurinn sagði starfi sínu lausu og var konan ráðin í staðinn síðastliðinn september. Skömmu síðar ákvarðaði kjararáð að laun fyrir starfið yrðu óbreytt nema að því leytinu að einingum fyrir yfirvinnu var fækkað töluvert.
Sætti konan sig ekki við þetta og kærði og var ákvörðunin felld úr gildi í kjölfarið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is