Þriðjudagur 23.08.2011 - 11:57 - Ummæli ()

Ein leiðin er að gefast upp og fara. Eygló kveður Guðmund

Eygló Harðardóttir.

Það eru nokkrar leiðir að mati Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, til að bregðast við hlutum innan stjórnmálaflokks. Annars vegar að gefast upp og fara eða vera sjálfur sú breyting innan flokksins sem maður vill sjá.

Svo skrifar Eygló í nýjasta Eyjupistli sínum þar sem hún kveður Guðmund Steingrímsson sem fyrir stundu sagði sig formlega úr Framsóknarflokknum. Hyggst Guðmundur starfa sem óháður þingmaður í bili en hefur hug á að setja á laggirnar nýjan flokk miðjumanna.

Guðmundur Steingrímsson hefur, ásamt nokkrum flokksmönnum, ákveðið að yfirgefa Framsóknarflokkinn. Óska ég þeim góðs gengis á nýjum vettvangi og þakka samstarfið. Þeir vita að ég hefði óskað að til þessa hefði ekki komið, en ákvörðunin er þeirra og hana ber að virða.

Þeir tilgreina sérstaklega stefnu flokksins í Evrópusambandsmálum og forystuna.

Æðsta lýðræðisstofnun Framsóknarflokksins er flokksþingið. Eftir síðasta flokksþing var ég mjög ánægð með ákvarðanir flokksmanna. Við vorum með skýra stefnu í sjávarútvegsmálum, tæpar 50 tillögur í atvinnumálum og við höfðum tekið stórt skref í átt að bættum vinnubrögðum og lýðræði með breytingum á lögum flokksins.

Ég var einnig mjög sátt við ályktun flokksþings um Evrópusambandið sem málefnanefndin lagði mikla vinnu í. Í henni endurspeglaðist sterk andstaða meirihluta Framsóknarmanna við aðild að Evrópusambandinu, en einnig trú okkar á lýðræðið og rétt þjóðarinnar til að taka ákvarðanir um stór mál er varða framtíð hennar. Margir voru ósáttir, bæði stuðningsmenn aðildar/-umsóknar og andstæðingar aðildar/-umsóknar. Það breytir því ekki að stefna flokksins var þarna mörkuð af æðstu lýðræðisstofnun flokksins.

Ef okkur hugnast ekki stefna eða forysta flokksins þá eru ýmsar leiðir til að bregðast við því.

Ein getur verið að gefast upp og fara.

Önnur getur verið að vera sú breyting sem maður vill sjá innan flokksins.

Því flokkurinn okkar er aldrei neitt annað en fólkið sem starfar í honum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is