Jón ákvað á eigin spýtur og gegn tillögu að setja verðtolla á innflutning
Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, ákvað upp á sitt einsdæmi og gegn áliti ráðgjafanefndar að úthluta tollum á landbúnaðarvörum samkvæmt verði en ekki magni. Sú aðgerð snarhækkaði alla tolla á innfluttar landbúnaðarvörur.
Birti ráðherrann loks í morgun, heilum mánuði eftir að umboðsmaður Alþingis taldi að ákvörðun Jóns bryti í bága við stjórnarskrá, yfirlýsingu um málið sem vakið hefur talsverða úlfúð meðal verslunarmanna.
Tekur Jón þar alla ábyrgð á að hafa breytt tollum á þann veg að miðað var við verð en ekki magn eins og raunin hefur verið síðustu árin. Ástæður þessa fæðuöryggi landans, gjaldeyrishöftin og ástandið í atvinnumálum.
Tilkynning ráðherrans í heild sinni:
Yfirlýsing ráðherra um tollamál
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vill af gefnu tilefni koma á framfæri vegna umræðu um álit umboðsmanns Alþingis um úthlutun tollkvóta í landbúnaði.:
Eins og fram kom á fundi með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í morgun kom tillaga um að breyta útreikningi tollkvóta úr svokölluðum magntolli í verðtoll ekki frá ráðgjafanefnd stjórnarráðsins um tollamál.
Ákvörðun um þessa breytingu var tekin af undirrituðum í ljósi þeirra aðstæðna sem hér sköpuðust við bankahrun haustið 2008. Hún tekur mið af gjaldeyrishöftum sem í gildi eru, ástandi í atvinnumálum og fæðuöryggi landsmanna.
Ákvörðunin var tekin í samræmi við samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna um að standa vörð um innlenda framleiðslu og störf í matvælaiðnaði.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti 22. ágúst 2011
Jón Bjarnason
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
