Lögreglumenn að missa þolinmæðina. Samningslausir í tæpt ár
Nemi í Tollvarðaskólanum fær hærri grunnlaun en lögreglumaður og það tekur fimmtán ár fyrir menntaðan lögreglumann að ná fagmenntuðum tollverði í launum. Þetta telja lögreglumenn fyrir neðan allar hellur en þeir hafa verið samningslausir um átta mánaða skeið.
Hefur kjaradeilu lögreglumanna við ríkið verið vísað til gerðardóms sem hefur lokaorð í deilunni. Telja lögreglumenn að þeir hafi setið eftir öðrum stéttum og kenna meðal annars um að þeir hafa ekki verkfallsrétt. Telja þeir sig eiga inni töluverða hækkun til að ná helstu viðmiðunarstéttum.
Fjöldi kjarasamninga eru á borði ríkissáttasemjara og eru sum málanna orðin meira en ársgömul. Fyrir utan lögreglumenn eru lausir samningar hjá sjúkraliðum, Reykjavíkurborg, Læknafélaginu og Skurðlæknafélaginu. Þá eiga minnst tveir hópar af almennum launamarkaði eftir að útkljá sín mál. Eru það Flugfreyjufélagið og starfsmenn Ísal.
Morgunblaðið greinir frá.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
