Vilja ljúka aðildarviðræðum og klára þjóðaratkvæða- greiðslu fyrir næstu kosningar
Aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verður hraðað með það í huga að þjóðin geti kosið um aðildarsamninginn fyrir Alþingiskosningarnar í apríl 2013.
Hefur Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, vakið máls á þessu við stækkunarstjóra Evrópusambandsins og þrýst á um að svo verði.
Í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 segir Össur að sú ósk sé ekki gerð sérstaklega til að þjóðaratvæðagreiðslu sé hægt að hafa á tilteknum tíma en það sé vilji fyrir að þjóðin hafi sagt sitt þegar kosið er að nýju að tæpum tveimur árum liðnum.
„Honum [stækkunarstjóranum Stefan Fuhle] var gerð skýr grein fyrir þeirri afstöðu okkar að við vildum hraða viðræðunum og taka inn þessa tvo stóru kafla, sjó og land. En það var ekki gert með það fyrir augum að hafa þjóðaratkvæði á einhverjum tilteknum tíma. Hins vegar hefur það legið fyrir að við vildum gjarnan að málinu yrði lokið með þeim hætti að það væri bæði hægt að hafa öfluga kynningu og ljúka þjóðaratkvæði fyrir næstu alþingiskosningar.“
„Það væri mjög æskilegt ef hægt væri að koma [þjóðaratkvæðagreiðslu] því í kring. Ef það verður hægt að ljúka samningunum nægilega snemma, þá er þetta það sem menn stefna að. Ég hef lagt áherslu á það til dæmis að menn vinni eins hratt og hægt er hér heima, ekki bara að fiskveiðimálunum eins og unnið er að, heldur einnig landbúnaðarmálunum.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
