Fjórir stjórnarmenn, tengdir fjölskyldu- og viðskiptaböndum, fengu 126% af eigin fé MP banka að láni
Fjármálaeftirlitið hefur lagt um 15 milljóna króna sekt á EA eignarhaldsfélag, áður MP banka hf., fyrir að hafa lánað fjórum stjórnarmönnum bankans 6,3 milljarða króna sem svaraði til 126,34% af eiginfjárgrunni bankans. Áhættuskuldbindingar af þessu tagi máttu mest vera 25% af eiginfjaŕgrunni.
„Áhættan fólst ýmist í lánum til hlutafélaga og einkahlutafélaga í eigu þeirra eða félaga sem þeir sátu í stjórnum hjá, allt hluti af þéttriðnu tengslaneti fjórmenninganna sem var hnýtt með viðskiptatengslum og að hluta til fjölskylduböndum,“ segir Fjármálaeftirlitið.
Á þeim tíma sátu í stjórn MP banka Margeir Pétursson, Sigfús Ingimundarson, Kristinn Ziemsen, Hallgrímur Jónsson og Sigurður G. Pálmason. Lánveitingarnar sem sektað er fyrir ná líka til varamanna í stjórn á þeim tíma.
Rekstrarhluti MP banka hf. hefur síðan verið seldur Skúla Mogensen og fleirum og er bankinn enn rekinn undir heitinu MP banki eins og kunnugt er. Eftir standa eignir og skuldbindingar hjá félaginu vegna fyrri eigenda, sem komið hefur verið fyrir í nýju félagi sem nefnist EA eignarhaldsfélag, sem vinnur að því að gera upp við kröfuhafa gamla bankans. Það er EA fjárfestingarfélag sem er ábyrgt fyrir sektargreiðslum en ekki núverandi eigendur MP banka. EA fjárfestingarfélag hefur stefnt FME fyrir dóm til að fá sektinni hnekkt.
Hér á eftir fer brot úr tilkynningu FME:
Greining Fjármálaeftirlitsins á stórum áhættum hjá MP banka byggðist á því að stofnað hefði verið til lánveitinga og annarrar áhættu gagnvart fjórum einstaklingum, sem allir sátu í stjórn bankans, aðal- eða varamenn.
Áhættan fólst ýmist í lánum til hlutafélaga og einkahlutafélaga í eigu þeirra eða félaga sem þeir sátu í stjórnum hjá, allt hluti af þéttriðnu tengslaneti fjórmenninganna sem var hnýtt með viðskiptatengslum og að hluta til fjölskylduböndum.
Fjármálaeftirlitið taldi ljóst að náin samvinna þeirra í svo mörgum félögum fæli í sér rík hagsmunatengsl. Fjármálaeftirlitið taldi tengslin reist á fjárhagslegum hagsmunum vegna sameiginlegs eignarhalds fjórmenninganna í félögum og persónulegum tengslum vegna fjölda félaga þar sem þeir sitja saman í stjórnum.
Þá eru tengslin að hluta reist á fjölskylduböndum vegna skyldleika tveggja þeirra. Slík hagsmunatengsl væru líkleg til að leiða til samstöðu fjórmenninganna um að stýra málefnum félaganna í samráði hver við annan. Af þessu leiddi að fjórmenningarnir, félög í eigu þeirra og félög sem þeir áttu sameiginlega meirihluta hlutafjár í eða mynduðu meirihluta í stjórn væru fjárhagslega tengdir aðilar eins og þeir eru skilgreindir í a. lið 2. gr. reglna nr. 216/2007.
Niðurstaða greiningarinnar var sú að MP banki hefði stofnað til áhættuskuldbindinga við tiltekin þrjú félög og félög í eigu þeirra að fjárhæð 4.252 milljónir króna. Þar að auki hafi bankinn stofnað til áhættuskuldbindinga við félög í meirihluta eigu fjórmenninganna að fjárhæð 2.117 milljónir króna.
Samtals námu þessar áhættuskuldbindingar bankans 6.368 milljónum króna sem var töluvert umfram eigið fé bankans og jafnframt margföld sú fjárhæð sem bankanum var heimilt að stofna til
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
